Veitingahús Landnámsseturs
Veitingahús Landnámsseturs
![]() |
| Hvíti salur |
Í veitingahúsi Landnámsseturs eru tveir salir; Hvíti salur og Arinstofa og rúma þeir samtals allt að 100 manns.
Yfir vetrartímann er veitingahúsið opið frá klukkan 11 til 17 alla daga og lengur ef viðburðir eru í húsinu. Einnig er opnað sérstaklega á kvöldin fyrir hópa ef þess er óskað.
Í hádeginu eru á boðstólum tvær tegundir af súpum, nýbakað brauð og salat á góðu verði. Tilvalið fyrir vinnandi fólk eða þá sem eiga leið um Borgarnes.
Ef pantað er fyrirfram getum við framreitt ýmsa spennandi rétti.
Lögð er áhersla á gott, ítalskt kaffi og úrval af girnilegu meðlæti.
Fjölbreyttur matseðill og sérstök leikhústilboð - smellið á stikuna vinstra megin á síðunni.














